Vísindaleikir
📘 Um verkefnið
Þessi vefsíða var unnin sem lokaverkefni í áfanganum
SNU012G – Að kenna um rafmagn og segulmagn vorið 2025, sem hluti af námi í
kennslufræði fyrir starfsmenntakennara.
Hugmyndin að verkefninu er að styðja kennara við að kynna
rafmagn og tilraunir tengdar segulsviði fyrir nemendum, allt frá 5. bekk grunnskóla upp í framhaldsskóla. Tilraunirnar eru hannaðar þannig að hægt sé að framkvæma þær á einfaldan og aðgengilegan hátt undir leiðsögn kennara – einkum í náttúruvísindanámi.
Kennarar eru hvattir til að nýta efnið frjálst í kennslu og hafa samband við höfund ef þeir vilja deila hugmyndum eða fá frekari upplýsingar.
Vona að þú hafir bæði gagn og gaman af efninu!
Sigurður Óskar
Óskarsson
Vísindaleikir – Rafmagnaðir hlutir
Vísindaleikir Lítil Rafmótor

🎯 Markmið verkefnis
Nemendur búa til einfaldan rafmótor og læra um samspil rafmagns og segulmagns.
🧰 Efni og áhöld
- 1 stk AA rafhlaða (1,5V)
- 1 stk sterkur segull (t.d. neodymium)
- Um 20 cm af koparvír
- Skæri eða vírklippur
- (Valfrjálst) Sandpappír ef vírinn er einangraður
🛠️ Leiðbeiningar
- Undirbúningur vírsins: Klippið um 20 cm af koparvír. Ef vírinn er einangraður, nuddið af einangrun með sandpappír á endunum (um 1 cm).
- Mótun vírsins: Beygið vírinn í U-laga form. Miðhlutinn á að snerta topp rafhlöðunnar (plús skaut) og endarnir að hvíla ofan á seglinum.
- Samsetning: Festið segulinn neðst við mínus skaut rafhlöðunnar. Setjið vírinn ofan á þannig að hann snerti bæði plús og mínus skaut í einu.
- Virkni: Vírinn byrjar að snúast – búið til einfaldan rafmótor!
🔬 Fræðileg skýring
Þegar rafstraumur fer um vírinn myndast segulsvið sem verkar með segulnum og skapar hreyfingu – þetta er grundvallarhugtak í rafmótorum.
⚠️ Öryggisráðstafanir
- Passið að rafhlaðan ofhitni ekki – þetta er aðeins til stuttra prófana.
- Fylgist með því að börnin meðhöndli rafhlöðu og segla með varúð.
Leiðbeiningar fyrir kennara:
- Mótaðu koparvírinn í hjartalaga spíral eða lykkju þannig að hann geti staðið á rafhlöðunni með tveimur punktum.
- Miðhluti vírsins (neðsti hlutinn) þarf að snerta plús skaut rafhlöðunnar (efst á rafhlöðunni).
- Báðir endar vírsins eiga að ná niður og hvíla létt ofan á seglinum sem liggur við mínusenda rafhlöðunnar.
- Ef allt er rétt tengt, mun vírinn byrja að snúast – og þannig er búið að búa til einfaldan rafmótor!
- Til viðbótar er hægt að sýna myndband þar sem kennari útskýrir hvernig þetta er gert skref fyrir skref.

🎥 Myndbands af tilraun með kennara
Smelltu hér til að hala niður myndbandinu:
Hér má sjá myndband sem sýnir hvað gerist í tilrauninni. Þar sem mismunandi vafrar styðja ekki öll myndbandssnið eins, þá eru tvær útgáfur af sama myndbandinu hér fyrir neðan. Ef annað þeirra virkar ekki, prófaðu hitt.
▶️ Skoða myndbandið á YouTube
🔬 Vísindaleikur 2 – Áhrif riðstraums og segulsviðs
Tilraun
Tilraunin sýnir hvernig riðstraumur (AC) í spólu getur myndað segulsvið sem hefur áhrif á nálæga málmhluti.
🎯 Markmið
Nemendur fylgjast með hvernig segulsvið myndast við rafmagn og hvernig það hefur áhrif á málma. Þeir fá innsýn í hvernig spennir og spóla virka saman og sjá bylgjuhreyfingar í málmum vegna segulsviðs.
🧰 Efni og tæki
- Einangraður spennir (til að tryggja öryggi)
- Riðstraumur (t.d. 110 V AC)
- Spólur (vafðar vírlykkjur)
- Málmplötur eða járnflísar
- Hrein og slétt yfirborð
🛠️ Framkvæmd skref fyrir skref
- Leggið spóluna á hreint borð og dreifið járnflísum yfir hana.
- Tryggið öryggi með einangruðum spennir og gætið að spennan sé viðunandi.
- Tengið strauminn og fylgist með hreyfingu málmflísanna.
- Prófið mismunandi samsetningar og fylgist með hvernig mynstrin breytast.
💡 Hvað er að gerast?
Þegar riðstraumur fer um spóluna myndast sveiflukennt segulsvið í kringum hana. Þetta svið hefur áhrif á nálæga málma og hreyfir þá. Hreyfingin sýnir hvernig segulsviðið flæðir í hring í kringum vírana.
⚠️ Öryggisatriði
- Notið alltaf einangraðan spennir – aldrei tengja beint við vegg.
- Tilraunin skal fara fram undir eftirliti kennara.
- Rafmagn á aðeins að vera tengt í mjög stutta stund í senn.
▶️ Skoða myndbandið á YouTube
Vísindaleikur 3 – Rafmagnaðir hlutir
Athugið: Tilraunir með stöðurafmagn virka best í þurru lofti, t.d. þegar það er frost eða þurra veðrátta. Hlutur getur haldið rafhleðslu í mislangan tíma eftir aðstæðum.
💬 Umræður og spurningar til barna
- Hvað er rafmagn?
- Er rafmagn hér inni?
- Hvað gerir rafmagn?
- Er rafmagn hættulegt?
- Getum við búið til rafmagn?
- Hvernig getum við búið það til?
🛑 Í upphafi og lok stundarinnar skal árétta að mikil rafmagnsorka er hættuleg, en það rafmagn sem við búum sjálf til í þessum leik er lítið og skaðlaust. Það er mikilvægt að útskýra muninn á „miklu“ og „litlu“ rafmagni.
🎯 Meginmarkmið
- Börnin læri að sum efni verða rafmögnuð þegar þau eru nudduð saman.
- Börnin skilji að rafmagn hefur áhrif á hluti úr sumum efnum en ekki öðrum.
- Börnin fái innsýn í hvernig stöðurafmagn virkar með einföldum tilraunum.
🔍 Áherslur í leiknum
- Börnin fá að gera hluti rafmagnaða og prófa hvaða efni virka best.
- Börnin tjá sína upplifun og skilning á því sem þau sjá og finna.
🧪 Dæmi um verkefni
- Nudda blöðru með hári, ullartrefli, flísefni, bómull eða silki og skoða áhrifin.
- Festa rafmagnaða blöðru við vegg – virkar það með öllum efnum?
- Nudda greiðu og skoða hvort hún dregur að sér pappírssnepla.
- Rafmagna svampþynnur og prófa að láta þær hreyfa pappír.
- Ber saman hvaða efni rafmagna hluti best – t.d. reglustiku, greiðu, pennar, trékubbar.
- Börnin lýsa upplifun sinni – bæði úr leiknum og daglegu lífi.
🧰 Nauðsynleg tæki og efniviður
- Litlar kúlur úr frauðplasti, pappírssneplar.
- Blöðrur, áldósir, greiður, svampar, plexíglerplata.
- Efni til nuddunar: ull, silki, flís, plast, bómull, leður, nælon.
- Verkfæri: reglustika, greiða, pennar, trékubbar.
- Plexígler – t.d. hægt að fá í verslun eins og Akron.